Þyrlan sækir veikan skipverja

tf-líf stækka

tf-líf Landhelgisgæslan

Hollenskt flutningaskip hefur óskað aðstoðar Landhelgisgæslu vegna skipverja sem er með alvarlegt botnlangakast. Skipið er nú statt langt suður af landi en þó innan landhelgi og stefnir til Vestmannaeyja. 

Þyrla Lann mun mæta skipinu þegar það á eftir um 30 sjómílur til lands og samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni er framkvæmdin með þessum hætti þar sem skipverjinn er ekki talinn vera í lífshættu.

Er gert ráð fyrir að skipið verði komið til Vestmannaeyja um fimmleytið í nótt.

Að gefnu tilefni vill Landhelgisgæslan koma á framfæri að samkvæmt verklagsreglum hennar er ekki flogið með þyrlum hennar lengra en 20-30 sjómílur á haf út þegar aðeins ein þyrluáhöfn er á vakt en sem stendur er ekki bakvakt til staðar. Öðru máli gegnir þegar tvær þyrluvaktir eru tiltækar.

 
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is