Verðhrun á dýrasta húsi heims

Villa Léopolda, glæsivilla í Cap Ferrat á frönsku Rivíerunni, var talið vera dýrasta íbúðarhús í heimi fyrir rúmu ári þegar rússneski auðkýfingurinn Míkhaíl Prokhorov ætlaði að kaupa það á 500 milljónir evra, jafnvirði 92 milljarða króna á núverandi gengi. Nú er húsið metið á jafnvirði 12,6 milljarða króna, að sögn bandaríska fjármálatímaritsins Forbes.

Prokhorov hafði gert samning um að kaupa húsið af Lily Safra, ekkju bankamannsins Edmond Safra, sem var myrtur í Mónakó árið 1999. Prokhorov hætti síðan við kaupin sl. haust eftir að hafa greitt jafnvirði 6,8 milljarða króna fyrirframleiðslu, sem hann fékk ekki endurgreidda.

Nú segir Forbes, að húsið sé til sölu á ný á 102 milljónir dala.  Blaðið hefur eftir forstjóra fasteignasölunnar Miller Samuel, að verðfallið á lúxusvillum endurspegli meira raunsæi en áður ríkti á þessum markaði. 

„Það var einkennileg stemmning, sem leiddi til þess að verð á þessum fasteignum náði stjarnfræðilegum hæðum. Verðfall nú er ekki endilega til marks um að þessi fasteignamarkaður sé hruninn heldur til marks um raunsæi," hefur Forbes eftir honum.  

Villa Léopolda var upphaflega byggð fyrir Leópold II Belgíukonung í byrjun 20. aldar en kóngur ætlaði að nota húsið til að dveljast í á sumrin. Léopold II auðgaðist á starfsemi  Belga í Kongó á 19. öld en Kongó var þá persónuleg eigin konungs, seinna varð landið belgísk nýlenda. Umsjónarmenn konungs komu upp þrælahaldi og beittu íbúana ægilegum hrottaskap, m.a. var fullyrt að fólk sem neitaði að þræla á ökrum og í námum hefði verið aflimað.  „Kongó-hneykslið" var mikil hneisa fyrir Belga í Evrópu um þetta leyti.

Um aldamótin 1900 átti konungur nánast allt land á Cap Ferrat. Árið 1902 keypti hann 20 ekrur af kjarrlendi skammt frá ströndinni í Villefranche-sur-Mer fyrir 1 franka. Þar lét hann reisa Villa Léopolda. 

Árið 1916 breytti belgíski erfðaprinsinn, sem síðar varð Albert I, húsinu í sjúkrahús fyrir hermenn sem særðust í fyrri heimsstyrjöld. Síðar eignaðist ítalska Agnelli fjölskyldan húsið og þar voru haldnar frægar veislur á sjöunda áratug síðustu aldar; meðal gesta þar voru Frank Sinatra og Ronald Reagan.

Húsið er miðja vegu milli Mónakó og Nice. Garðurinn við húsið þykir listaverk enda sjá 50 garðyrkjumenn í fullu starfi um að halda honum við. Þar hefur verið plantað um 1200 trjám af ýmsu tagi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar


finnur.is