Handteknir fyrir piparkökuskemmdir

Piparkökuhús eru ómissandi um jólin. stækka

Piparkökuhús eru ómissandi um jólin. mbl.is/Árni Sæberg

Tveir karlmenn, 21 og 26 ára, hafa verið handteknir í Björgvin í Noregi, grunaðir um að hafa um helgina skemmt piparkökuþorp, sem komið hafði verið fyrir í miðborginni. Mikil reiði ríkir í Björgvin vegna þessara skemmdarverka.

Norskir fjðlmiðlar segja, að mennirnir búi báðir í Björgvin. Lögregla hefur litlar upplýsingar veitt en segir að eftir yfirheyrslur verði tekin ákvörðun um frekari málsmeðferð. Ekki sé heldur víst að mennirnir séu piparkökuskemmdarvargarnir.  

Piparkökuhúsaþorp hefur verið reist í miðborg Björgvinjar allt frá árinu 1991 og þykir lífga mjög upp á bæinn. Um helgina voru allt að 800 piparkökuhús hins vegar eyðilögð. Einhverjar myndir náðust á eftirlitsmyndavélar og einnig fékk lögreglan ábendingar.  

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí


finnur.is