Innlent
| mbl
| 23.11.2009
| 13:27
Löghlýðnar skyttur á Austurlandi
Lögreglan á Seyðisfirði hefur haldið uppi reglubundnu
eftirliti með rjúpnaveiðum á yfirstandandi veiðivertíð. Allir veiðimenn hafa enn
sem komið er reynst hafa bæði veiðikort og skotvopnaleyfi í lagi. Þá hefur ekki
orðið vart við að veiðimenn veiddu í óþökk landeigenda og hafa engar kærur borist
vegna slíkra mála það sem af er rjúpnaveiðitímabilinu, að því er fram kemur á vef lögreglunnar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






