Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 23.11.2009
| 21:46
Newcastle í toppsætið á ný
Newcastle United komst á ný í efsta sæti ensku 1. deildarinnar í knattspyrnu í kvöld með því að sigra Preston North End á útivelli, 1:0.
Kevin Nolan skoraði sigurmarkið á 74. mínútu og Newcastle er nú komið með 36 stig en WBA er í öðru sæti með 34 stig. Bæði liði féllu úr úrvalsdeildinni í vor.
Nýliðar Leicester eru í þriðja sætinu með 30 stig og síðan kemur velska liðið Swansea City með 28 stig.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






