Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 23.11.2009
| 13:52
Torres varð eftir í Liverpool
Fernando Torres, framherji Liverpool, varð eftir í Liverpool og fór ekki með liðinu til Ungverjalands eins og reiknað hafði verið með en Liverpool mætir ungverska liðinu Debrecen í riðlakeppni Meistaradeildarinnar annað kvöld. Sömu sögu er að segja um Hollendinginn Ryan Babel sem meiddist í leiknum gegn Manchester City á laugardaginn.
Torres er enn að jafna sig af nárameiðslum en hann hefur verið fjarri góðu gamni í síðustu tveimur leikjum Liverpool og hætt er við því að hann missi einnig af leiknum gegn Everton um næstu helgi.
Ekkert nema sigur dugar Liverpool á morgun til eiga einhverja möguleika á að komast í 16-liða úrslitin. Fari hins vegar svo að Fiorentina vinni sigur á Lyon annað kvöld er ljóst að Liverpool kemst ekki áfram.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






