Ætlar að draga á norræn lán

Már Guðmundsson seðlabankastjóri. stækka

Már Guðmundsson seðlabankastjóri. Ragnar Axelsson

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, segir að Seðlabanki Íslands hyggist draga á lánalínur frá hinum Norðurlöndunum. Þetta kom fram á fundi Félags viðskipta- og hagfræðinga sem fram fer á Grand Hótel í dag.

Már sagði í erindi sínu að Seðlabankinn hygðist draga á lánalínur frá Norðurlöndum til að styrkja gjaldeyrisforða bankans. Vonast er til að peningar frá Norðurlöndum berist fyrir jól. Fleiri orð hafði Már ekki um málið.

Í erindi seðlabankastjórans kom jafnframt fram að önnur greiðsla Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefði nú borist, og efnahagsáætlun sjóðsins í samstarfi við íslensk stjórnvöld gengi samkvæmt áætlunum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar


finnur.is