Glæsibygging rís í Kópavogi

Sæktu Flash-spilarann til að spila myndskeiðið
mbl.is Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is

Krakkarnir á leikskólanum Rjúpnahæð í Kópavogi hafa ástæðu til að syngja piparkökusönginn þessa dagana því undanfarið hafa þau unnið að gerð glæsilegs piparkökuhúss, sem verður meðal framlaga í piparkökuhúsasamkeppninni í Smáralind nú á aðventunni.

Húsið hönnuðu, smíðuðu og skreyttu elstu börnin í skólanum, alls 42 krakkar sem eflaust hafa lært heilmikið á hönnunar- og byggingarferlinu. Haldnir voru 20 mínútna langir vinnufundir þar sem arkitektarnir skeggræddu vinnuferlið og hönnunina. Gerðar voru teikningar, þrívíddarlíkön, mót og skissur áður en ráðist var í baksturinn sjálfan og skreytingarnar, sem sköpurunum þótti vissulega einna mest spennandi.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is