Talibanar vilja ekkert ræða við Karzai
Múlla Mohammad Omar, leiðtogi talibana í Afganistan, segist ekkert vilja ræða við Hamid Krazai, forseta Afganistans en Karzai lýsti því yfir þegar hann var settur í embætti á ný í síðustu viku, að hann myndi beita sér fyrir þjóðareiningu og kvaðst ætla að kalla saman afganskt þjóðarráð til að koma á varanlegum friði.
„Afganska þjóðin mun ekki samþykkja samningaviðræður, sem framlengja og reyna að skjóta lögmætum stoðum undir veru innrásarliðsins í föðurlandi okkar," er haft eftir Omar í yfirlýsingu talibana.
Um 100 þúsund hermenn eru nú á vegum Bandaríkjanna og NATO í Afganistan til að aðstoða afgönsk stjórnvöld við að berjast við talibana, sem hafa sótt í sig veðrið á ný á síðustu misserum.
Omar var trúarleiðtogi talibana þegar þeir voru við völd í Afganistan. Honum tókst að komast undan eftir að Bandaríkjamenn og bandalagsríki þeirra, gerðu innrás í landið haustið 2001. Hann hefur síðan farið huldu höfði.






