Varað við stormi

Veðurstofan varar við stormi á Miðhálendinu og austantil á Suðausturlandi í dag.  Búast má við hvössum vindhviðum við fjöll, einkum suðaustanlands, á miðhálendinu, og á sunnanverðu Snæfellsnesi.

Útlit er fyrir norðaustan hvassviðri, 10-18 m/s. Dálítil snjókoma eða slydda norðaustanlands og rigning úti við sjóinn, él norðvestantil, en skýjað með köflum og þurrt suðvestanlands. Hvessir heldur með morgninum og sums staðar 18-23 m/s á Suðausturlandi síðdegis. Hiti kringum frostmark.

Á höfuðborgarsvæðinu verður norðaustan 8-13 m/s, en 10-15 síðdegis. Bjart með köflum og hiti nálægt frostmarki.

Á morgun, fimmtudag, er útlit fyrir norðaustan 8-15 m/s og él, en léttskýjað sunnan- og vestanlands. Frost víða 0 til 5 stig, en frostlaust við suður- og austurströndina.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is