Júlíus Sigurjónsson
Vinnuslys varð við Sæmundarskóla í Grafarholti í morgun. Verið var að taka byggingarfleka af vörubíl þegar flekinn féll á starfsmanninn. Tilkynnt var um slysið um kl. 9.30 í morgun. Að sögn lögreglu var talið að maðurinn hafi fótbrotnað.