Myrti fjölskylduna á Þakkargjörðarhátíð

McKayla Sitton var fórnarlamb skotárásar á Þakkjargjörðarhátíðinni. stækka

McKayla Sitton var fórnarlamb skotárásar á Þakkjargjörðarhátíðinni.

Leit hefur staðið yfir á Flórída í dag að manni sem grunaður er um að hafa myrt fjóra ættingja sína, eitt barn þar á meðal, og sært aðra á meðan fjölskyldumáltíð stóð í tilefni Þakkargjörðarhátíðarinnar í Bandaríkjunum í gær.

Maðurinn, Paul Michael Merchige, er 35 ára gamall og flúði af vettvangi eftir voðaverkið. “Á þessum tímapunkti í rannsókninni getum við staðfest að fjögur fórnarlömb eru dáinn,” hefur AFP eftir yfirlýsingu frá lögreglunni. Á meðal hinna látnu er hin sex ára gamla McKayla Sitton, sem er sögð hafa legið í rúminu sínu þegar hún var skotin. Hin fórnarlömbin eru öll konur, hin 76 ára gamla Ramone Joseph, og tvíburasystur árásarmannsins, hinar 33 ára gömlu Carla og Lisa Merhige.

Atburðarásin mun hafa verið sú að eftir hefðbundna þakkargjörðarhátíð með stórfjölskyldunni yfirgaf Merhige veisluna þar sem 17 gestir voru staddir. Stuttu síðar sneri hann svo aftur vopnaður skammbyssu og hóf skothríð.

“Við vitum ekki enn hvað leiddi til þessa athæfis,” segir í yfirlýsingu lögreglunnar. “Það virðist ekki hafa verið neitt rifrildi í aðdraganda árásarinnar.”  Fyllstu varúðar er gætt við leitina að árásarmanninum enda er hann talinn vopnaður og hættulegur.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí


finnur.is