Ofsi og Konur tilnefnd til bókmenntaverðlauna

Einar Kárason, stækka

Einar Kárason, Kristinn Ingvarsson

Skáldsögurnar Ofsi, eftir Einar Kárason, og Konur eftir Steinar Braga, eru tilnefndar af hálfu Íslands til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Tekin verður ákvörðun um verðlaunahafa í mars en verðlaunin verða afhent á þingi  Norðurlandaráðs í Reykjavík næsta haust.

Af hálfu Dana eru tilnefnd þau Peter Kihlgård fyrir ljóðasafnið Fotorama, og Ida Jessen fyrir skáldsöguna Børnene.

Frá Finnlandi eru tilefndar   Sofi Oksanen fyrir skáldsöguna Puhdistus og Monika Fagerholm fyrir skáldsöguna Glitterscenen. 

Norðmenn tilnefna Karl Ove Knausgård fyrir skáldsöguna Min kamp 1 og Tomas Espedal fyrir skáldsöguna Imot kunsten. Frá Svíþjóð eru tilnefnd Steve Sem-Sandberg fyrir skáldsöguna De fattiga i Łódź og Ann Jäderlund fyrir ljóðasafnið Vad hjälper det en människa om hon häller rent vatten över sig i alla sina dagar.

Loks er Færeyingurinn Gunnar Hoydal tilefndur fyrir skáldsöguna Í havsins hjarta.

Steinar Bragi.

Steinar Bragi. mbl.is/Kristinn

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is