HK komið í undanúrslit

Ólafur Víðir Ólafsson skoraði 9 af mörkum HK. stækka

Ólafur Víðir Ólafsson skoraði 9 af mörkum HK. mbl.is/Þórir Ó. Tryggvason

HK er komið í undanúrslit í bikarkeppni karla í handknattleik en Kópavogsliðið lagði Selfoss á útivelli í kvöld, 25:18, eftir að hafa haft yfir í hálfleik, 10:9.

Atli Kristinsson var markahæstur í liði Selfyssinga með 7 mörk en hjá HK-ingum var Ólafur Víðir Ólafsson markahæstur með 9 mörk.

Haukar og HK er þar með komin í undanúrslitin en annað kvöld lýkur átta liða úrslitunum þegar Valur tekur á móti Fram og Víkingur og Grótta eigast við í Víkinni.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar


finnur.is