Meintum ástkonum Tigers fjölgar

Rachel Uchitel, ein kvennanna sem Woods er sagður hafa átt vingott við. stækka

Rachel Uchitel, ein kvennanna sem Woods er sagður hafa átt vingott við. Reuters

Fjölmiðlar beggja vegna Atlantshafs halda áfram að grafa upp meintar ástkonur bandaríska kylfingsins Tigers Woods. Þá er fullyrt, að hann hafi boðið að minnsta kosti einni þeirra milljónir dala fyrir að veita ekki fjölmiðlum upplýsingar.

Woods sendi frá sér yfirlýsingu í síðustu viku þar sem hann virtist viðurkenna að hafa hrasað á vegi dyggðanna. Í síðustu viku voru þrjár konur nefndar, sem sagðar voru hafa átt vingott við Woods en í dag birta götusölublöð bæði í Bandaríkjunum og Bretlandi fréttir um þrjár til viðbótar.

Breska helgarblaðið The News of the World birti í dag viðtal við Mindy Lawton, 33 ára framkvæmdastjóra veitingahúss, sem segist hafa sofið hjá Woods á heimili hans nálægt Orlando á Flórída.  Blaðið segir, að Woods hafi sparkað Lawton snemma árs 2007 þegar hann tók upp samband við Jaimee Grubbs, 24 ára þjón sem býr í Los Angeles. 

Breska blaðið Sunday Mirror segir að Woods hafi einnig átt ástarævintýri með 26 ára fyrirsætu, Jamie Jungers, á hóteli í Las Vegas, en heimildarmaðurinn fyrir þeirri frétt er fyrrum unnusti Jungers. 

Bandaríska götusölublaðið The New York Daily News segir að Woods hafi verið í sambandi við sjöttu konuna, Cori Rist, en haft er eftir henni í blaðinu: „Ég tjái mig ekki... Ekki núna."  

Woods sendi frá sér yfirlýsinguna í síðustu viku eftir að tímaritið US Weekly birti upplýsingar um samband hans við Grubbs en blaðið hafði eftir henni að þau Woods hefðu verið í ástarsambandi í tæp 3 ár. Blaðið hafði eftir annarri konu, Kalika Moquin, á fimmtudag, að sögur um samband hennar og Woods væru algerlega rangar.  

Konan, sem kom málinu af stað, Rachel Uchitel, hefur einnig neitað fréttum um að þau Woods hafi átt í ástarsambandi. Hún boðaði til blaðamannafundar á fimmtudag en aflýsti honum skömmu síðar af ófyrirsjáanlegum ástæðum eins og það var orðað. Nú fullyrða bandarískir fjölmiðlar að hún sé að semja við Woods peningagreiðslur en ella birti hún tölvupósta og SMS sem farið hafi á milli þeirra.

Vefurinn RadarOnline.com segir, að Uchitel fái á bilinu 1 til 3 milljónir dala fyrir að þegja. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí


finnur.is