Erlent
| mbl
| 11.12.2009
| 18:31
Shell öðlast rétt til olíuvinnslu í Írak
Olíufyrirtækin Shell frá Bretlandi og Petronas frá Malasíu hafa í sameiningu öðlast réttinn til þess að vinna olíu á landsvæði í Írak sem nefnist Majnoon.
Alls tóku 44 fyrirtæki þátt í útboði á alls tíu svæðum í landinu, en þetta var í annað sinn sem slíkt útboð er haldið síðan Bandaríkjamenn réðust inn í Írak árið 2003. Frá þessu er greint á vef breska ríkisútvarpsins.
Þó Majnoon-svæðið sé talið búa yfir gríðarlegu magni af olíu, eða sem samsvarar 13 milljörðum olíutunna, þá er í dag aðeins verið að vinna 46 þúsund tunnur á ársgrundvelli.
Shell og Petronas hyggjast auka framleiðsluna í 1,8 milljón tunna á dag. Gerður hefur verið tuttugu ára þjónustusamningur við fyrirtækin tvö.
Samtímis hefur verið gerður samningur við kínverska olíufyrirtækið CNPC vegna olíusvæðis í Írak sem nefnist Halfaya og staðsett er í suðurhluta landsins nærri landamærunum að Íran. Þar er talið að hægt verði að vinna alls 4,1 milljarð tunna af olíu úr jörðu.

© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin