Átta buðu í Skeljung

Átta buðu í minnihlutann í Skeljungi stækka

Átta buðu í minnihlutann í Skeljungi mbl.is/Golli

Átta óskuldbindandi tilboð bárust í 49% hlut í Skeljungi ehf. og tengdum félögum en Íslandsbanki óskaði eftir tilboðum í hlut sinn í olíufélaginu. Þeim sex tilboðsgjöfum sem áttu hæstu óskuldbindandi tilboðin, verður gefinn kostur á áframhaldandi þátttöku í söluferlinu og veittur aðgangur að nánari upplýsingum um starfsemi og fjárhag fyrirtækisins.

Skuldbindandi tilboðum með fyrirvara um áreiðanleikakönnun ber að skila í síðasta lagi mánudaginn 21. desember 2009. Skuldbindandi tilboð verða opnuð í viðurvist óháðs aðila. Í kjölfarið taka við viðræður við hæstbjóðendur, samkvæmt tilkynningu.

Fjárfestingafélagið Skel fer með 51% hlut í Skeljungi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar


finnur.is