Coldplay selur græjur á eBay

Gítarleikarinn Jonny Buckland og söngvarinn Chris Martin á tónleikum. stækka

Gítarleikarinn Jonny Buckland og söngvarinn Chris Martin á tónleikum. Reuters

Breska hljómsveitin Coldplay hyggst selja ýmsa muni tengdum sveitinni, m.a. hljóðfæri og platínum diska, á uppboðsvefnum eBay. „End Of Decade Clearout Sale“ kallast bílskúrssala fjórmenninganna og mun allur ágóði renna til góðgerðarsamtakanna Kids Company.

Næstkomandi fimmtudag, þann 17. desember, verður hægt að bjóða í munina (frá kl. 17 að íslenskum tíma). Uppboðið stendur fram á gamlárskvöld, að því er fram kemur á vef breska útvarpsins.

Á vef Coldplay að liðsmennirnir muni annað hvort árita gripina eða láta áritað vottorð, sem á að staðfesta uppruna gripanna, fylgja með í kaupunum.

Hægt verður að sjá á vef sveitarinnar þá muni sem verða boðnir upp.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar


finnur.is