Samdráttur í fiskafla í nóvember

mbl.is

Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum nóvembermánuði, metinn á föstu verði, var 13,2% minni en í nóvember 2008. Það sem af er árinu hefur aflinn aukist um 3,9% miðað við sama tímabil 2008, sé hann metinn á föstu verði.

Að sögn Hagstofunnar var aflinn í nóvember 2009 85.690 tonn samanborið við 117.837 tonn í sama mánuði árið áður.

Botnfiskafli dróst saman um 3600 tonn frá nóvember 2008 og nam tæpum 37.600 tonnum. Þar af nam þorskaflinn rúmum 16.200 tonnum, sem er um 1000 tonnum meira en árið áður. Ýsuaflinn nam tæpum 5300 tonnum sem er um 2900 tonnum minni afli en í nóvember 2008. Ufsaaflinn stóð nokkurn veginn í stað á milli ára og nam 6300 tonnum. Rúm 4200 tonn veiddust af karfa sem er um 2800 tonnum minni afli en í nóvember 2008.

Afli uppsjávartegunda nam tæpum 45.500 tonnum sem er 29.000 tonnum minni afli en í nóvember 2008. Segir Hagstofan, að sú breyting skýrist  nær alfarið af minni síldarafla. Í nóvember veiddust einnig tæp 1500 tonn af gulldeplu en ekkert var veitt af henni í nóvember 2008.
 
Flatfiskaflinn var 1927 tonn í nóvember 2009 og stóð nokkurn veginn í stað á milli ára. Skel- og krabbadýraafli nam 618 tonnum samanborið við 198 tonna afla í nóvember 2008. Af öðrum afla veiddust 108 tonn af sæbjúgu í mánuðinum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is