Tilboði í West Ham hafnað

Gianfranco Zola, knattspyrnustjóri West Ham. stækka

Gianfranco Zola, knattspyrnustjóri West Ham. Reuters

CB Holdings, dótturfélag Straums, sem á enska knattspyrnufélagið West Ham, mun hafna tilboði frá kaupsýslumönnunum David Gold og David Sullivan í félagið. Þetta fullyrða bresku blöðin The Times og Independent í dag.

Þeir Gold og Sullivan lögðu í gær fram formlegt tilboð í félagið til Rothschild og Standard Bank, sem hefur verið falið að selja félagið fyrir hönd CB Holdings. Fram kom í gær að tilboðið hljóðaði upp á 50 milljónir punda, jafnvirði 10 milljarða króna.

The Times segir, að Straumur muni hafna tilboðinu í ljósi þess, að bankinn, sem er í greiðslustöðvun, fái hana væntanlega framlengda. Straumur fór fram á það við Héraðsdóm Reykjavíkur á föstudag að greiðslustöðvunin verði framlengd.  

The Times segir, að þeir  Gold og Sullivan muni hafa lagt fram tvennskonar tilboð. Annað hafi verið um að þeir keyptu félagið allt fyrir 50 milljónir punda og hitt hafi hljóðað upp á að þeir keyptu helmingshlut í félaginu. Blaðið segir að báðum tilboðunum verði hafnað. CB Holdings meti West Ham á 120 milljónir punda ogí ljósi þess að skuldir félagsins nemi 40 milljónum punda vilji íslensku eigendurnir fá 80 milljónir punda fyrir West Ham, jafnvirði 16,4 milljarða króna. Independent segir raunar að skuldir West Ham nemi 70 milljónum punda.

Fleiri en þeir Sullivan og Gold eru sagðir hafa áhuga á West Ham, þar á meðal fjárfestingarfélagið Intermarket Group í Lundúnum og Tony Fernandes, malasískur kaupsýslumaður. Engin formleg tilboð hafa hins vegar komið frá þessum aðilum.

The Times segir, að Straumur hafi lagt West Ham til 5 milljónir punda í nóvember til að létta fjármálalegum þrýstingi af félaginu en geti hins vegar ekki fjármagnað leikmannakaup þegar félagaskiptaglugginn svonefndi opnast í janúar. Von er hins vegar á 7 milljóna punda greiðslu frá ensku úrvalsdeildinni vegna sjónvarpsréttinda í byrjun janúar. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar


finnur.is