Tvær tennur festust í olnboganum á Nowitzki (myndband)

Dirk Nowitzki fer af velli með tennurnar í olnboganum. stækka

Dirk Nowitzki fer af velli með tennurnar í olnboganum. Reuters

Þýski landsliðsmaðurinn Dirk Nowitzki varð fyrir undarlegum meiðslum í tapleik Dallas Mavericks gegn Houston Rockets aðfaranótt laugardags.  Carl Landry leikmaður Houston fékk hægri olnbogann á Nowitzki af miklu afli í andlitið í einni sókn Dallas. Um óviljaverk var að ræða og losnuðu þrjár tennur í Landry. Hann yfirgaf völlinn og kom ekki meira við sögu en Nowitzki var einnig úr leik þar sem að tvær tennur úr Landry festust í olnboga hans.

Myndband.

Houston hafði betur í leiknum, 116:108, en hér má sjá myndband af atvikinu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar


finnur.is