Erlent
| mbl
| 20.12.2009
| 19:34
| Uppfært
22:34
Íranskt herlið hörfar
Íranskir hermenn hafa hörfað frá Fakka, umdeildu olíusvæðinu sem írönsk og írösk stjórnvöld gera bæði tilkall til. Kann það að benda til þess að deilu um svæðið sé lokið í bili eða í það minnsta að dregið hafi úr spennu milli ríkjanna.
Talsmaður íraskra stjórnvalda, Ali al-Dabbagh, sagði í dag að hópur íranskra hermanna sem hertekið hefði olíuborholu við landamæri Íraks og Íran í síðustu viku væri nú ekki lengur þar. Írak telur borholuna tilheyra Fakka olíusvæðinu. Íranski fáninn hefði verið dreginn af húni.
Landamæradeilan olli því að olíuverð hækkaði föstudaginn sl, í kjölfar frétta af því að íranskar hersveitir hefðu náð yfirráðum yfir íraskri borholu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






