Hálft annað tonn af kókaíni

Úr myndasafni. Kókaín í pokum.

Úr myndasafni. Kókaín í pokum. MARIANA BAZO

Lögreglumenn frá Bretlandi og Spáni lögðu í dag hald á að minnsta kosti eitt og hálft tonn af kókaíni, í skipi undan ströndum Spánar í dag, í sameiginlegri aðgerð. Kókaínið er talið vera um 420 milljóna evra virði á götunni, eða um 78 milljarða króna virði.

Spænska lögreglan fór um borð í skipið, sem heitir Destiny Empress, um 200 sjómílur úti á sjó. Skipið var þá á leið til Bretlands, en það er fyrrverandi strandgæslubátur. Því var siglt í höfn þar sem leitað var í því.

Talið er að mikill meirihluti efnanna hafi átt að enda í London," segir í yfirlýsingu frá bresku lögreglunni, Scotland Yard. Fimm voru handteknir vegna málsins í dag.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí


finnur.is