Milljörðum sáldrað yfir Spán rétt fyrir jól

Sæktu Flash-spilarann til að spila myndskeiðið

Spænska lottóið El Gordo, eða Sá feiti, sem er stærsta lottó í heimi ef litið er til vinningsupphæða, dreifði í dag peningum og væntanlega trylltri gleði um Spán, en þar er eitt mesta atvinnuleysið í allri Evrópu.

Dregnir voru út vinningar sem nemur 2,32 milljörðum evra. Það jafngildir vel á fimmta hundrað milljarða króna. Til samanburðar má nefna að Icesave-skuldbindingarnar eru eitthvað yfir 700 milljarðar króna.

Fyrsti vinningur fór þetta árið til 1.950 vinningshafa sem höfðu talnarununa 78294 á miðum sínum. Hver og einni þeirra fékk 300.000 evrur í sinn hlut, eða um 55 milljónir króna.

Allir miðarnir með þessu númeri voru seldir í söluturni í verkamannahverfi  í Tetuan-hverfi í Madríd, en þar búa margir innflytjendur frá Suður-Ameríku. Sabino Calderon, fimmtugur atvinnulaus múrari frá Ekvador, var einn þeirra sem fengu fyrsta vinninginn.

„Með þessum peningum ætla ég í fyrsta lagi að heimsækja konu mína og börn sem búa í Ekvador," sagði hann blaðamönnum. Hann hefur ekki séð fjölskylduna sína í þrjú ár.

Sá feiti er dreginn út 22. desember ár hvert og er til þess gerður að sem flest fólk á Spáni fái væna búbót rétt fyrir jólin.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar


finnur.is