Þúsundir á ferðinni
„Veðráttunnar vegna ættu allir að komast heim í frí. Á Þorláksmessu verður ágætt veður um allt land en á aðfangadag versnar veður á Vestfjörðum og í þann mund sem jólin verða hringd inn eru líkur á hríðarveðri þar," sagði Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur.
Þúsundir eru á faraldsfæti um landið til að ná til síns heima og halda hátíð með sínu fólki. Allir vegir í byggð eru opnir þótt hálka sé á stöku stað. Margir þeir heiðavegir sem alla jafna eru lokaðir þegar komið er fram á þennan tíma vetrar eru enn opnir eða hafa verið ruddir, svo sem Dynjandis- og Hrafnseyrarheiði.
Mikið er umleikis hjá Flugfélagi Íslands sem að undanförnu hefur verið að flytja um og yfir þúsund farþega á degi hverjum. Allur floti félagsins er því í útgerð. Háönnin verður á morgun, þegar flognar verða átta ferðir til Akureyrar, sex til Egilsstaða og tvær til Ísafjarðar og Vestmannaeyja. Á aðfangadag verður flogið fram til klukkan þrjú og svo verður þráðurinn tekinn aftur upp annan í jólum. „Veðurútlit er ágætt og þetta ætti að ganga upp. Strax milli hátíða byrjar svo fólk að flykkjast aftur heim," sagði Ingi Þór Guðmundsson, forstöðumaður sölu- og markaðssviðs FÍ.






