Fleiri handteknir í Íran

Frá Teheran stækka

Frá Teheran Reuters

Nokkrir af helstu fylgismönnum Mohammad Khatami , klerks og fyrrverandi forseta og Mir Hossein Mousavi, leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Íran, hafa verið handteknir í dag í kjölfar mótmælanna í Teheran. Mjög er á reiki hversu margir hafa látist í átökum við lögreglu og her en talið er að þeir séu um fimmtán talsins. Fleiri hundruð mótmælendur eru í haldi lögreglu.

Samkvæmt því sem kemur fram á vefnum Rahesabz sem stjórnarandstæðingar halda úti eru meðal þeirra sem handteknir hafa verið fyrrum utanríkisráðherra Írans, Ebrahim Yazdi, en hann gegndi embætti ráðherra skömmu eftir íslömskum byltinguna í Íran árið 1979. Hann var handtekinn á heimili sínu í morgun.

Jafnframt var blaðamaðurinn og baráttumaðurinn Emadeddin Baghi handtekinn í morgun í Teheran.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar


finnur.is