Hæsta bygging heims opnuð

Sæktu Flash-spilarann til að spila myndskeiðið

Hæsta bygging heims, Burj Dubai, verður opnuð formlega á morgun í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Um er að ræða skýjakljúf sem hefur verið sex ár í byggingu og væntanlega er 818 metra hár en endanleg hæð verður gefin upp á morgun.  Verkfræðingar, sem unnið hafa við bygginguna, segja að loftið sé greinlega svalara og hreinna á efstu hæðunum en á jörðu niðri.

Formlegri opnun byggingarinnar hefur verið frestað nokkrum sinnum en hún var orðin sú hæsta í heimi þegar árið 2007 meðan hún var enn í byggingu. Þá náði húsið hærra en KVLY sjónvarpsturninn í Bandaríkjunum, sem er 629 metra hár. 

Vegna mikilla framkvæmda í Dubai undanfarin ár er orðið lítið í ríkiskassanum og nýlega lýstu stjórnvöld því yfir, að þau gætu hugsanlega ekki staðið við allar erlendar skuldbindingar opinberra félaga.

Alls kostar Burj Dubai jafnvirði 515 milljarða króna. Breska blaðið The Times segir, að vegna fjárhagsörðugleika hafi um 400 umfangsmiklar byggingaframkævmdir verð stöðvaðar á síðari hluta ársins 2009. Fullyrt er hins vegar að búið sé að selja allar 1000 íbúðirnar í nýja turninum.  

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar


finnur.is