Hinrik handlagni á listanum

Henry í leiknum á Stade de France. stækka

Henry í leiknum á Stade de France. Reuters

Thierre Henry, leikmaður Barcelona, er í byrjunarliði CNN yfir mestu skúrka knattspyrnunnar síðasta áratuginn. Henry, sem gárungarnir kalla Hinrik handlagna, kemst á listann eftir tvígripið á móti Írum í síðari útsláttarleik fyrir HM í Suður-Afríku í júní. Henry er annar í valinu.

En Henry handlék þá knöttinn tvívegis áður en hann renndi boltanum á Gallas sem skildi Írana eftir með sárt ennið eftir hetjulega baráttu á Stade de France.

Vart kemur á óvart að landi Henrys, snillingurinn Zinedine Zidane, sé efstur á listanum.

Rivaldo er í þriðja sæti, Luis Figo í því fjórða, Roy Keane í því fimmta, Adrian Mutu í því sjötta, dómarinn Robert Hoyzer í því sjöunda fyrir að hafa áhrif á úrslit leikja, Joey Barton í því áttunda, Kínverjinn Zheng Zi í því níunda og Diego Maradona og Rene Higuita í því tíunda og ellefta.

Lista CNN má nálgast hér

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar


finnur.is