Mataraðstoð frestað á Haítí vegna svika

Barn með flösku af vatni sem því var útdeilt í Port-au-Prince á Haítí. stækka

Barn með flösku af vatni sem því var útdeilt í Port-au-Prince á Haítí. ELIANA APONTE

Sameinuðu þjóðirnar gerðu í dag hlé á útdeilingu matar í Port-au-Prince á Haítí eftir að í ljós kom að falsaðir matarmiðar eru í umferð. Hrísgrjónaskömmtum er deilt út til fólks en ákveðið var að bíða með það um stund á meðan reynt var að komast að því hversu margir falsaðir miðar hafa verið gerðir.

Matvælaaðstoð SÞ segir að töfin komi niður á um 10.000 fórnarlömbum skjálftans sem reiði sig á matarskammtinn. Hinsvegar er talið að öngþveiti gæti myndast ef mat er áfram deilt út áður en búið er að uppræta vandann og bæta kerfið.

Óttast er að konur með stóran hóp af börnum á sínu framfæri og aðrir hópar í sárri neyð verði útundan í forgangsröðinni við útdeilingu matarmiða.

Alls er matvælum útdeilt á 16 stöðum víðsvegar um borgina. Hver fjölskylda fær 25 kg poka af hrísgrjónum sem ætlast er til að endist í tvær vikur.

Talsmenn matvælaaðstoðarinnar vonast til þess að unnt verði að hefja dreifingu matvæla aftur strax á morgun.

 
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar


finnur.is