Palin með glósur í lófanum

Sarah Palin virðist ekki hafa treyst sér til að svara spurningum án þess að hripa ... stækka

Sarah Palin virðist ekki hafa treyst sér til að svara spurningum án þess að hripa svörin í lófann fyrst.

Stjórnmálastjarnan Sarah Palin var enn einu sinni á milli tannanna á fólki í dag þegar gárungarnir drógu dár að henni fyrir að reiða sig á minnispunkta, sem krotaðir voru í lófa hennar, fyrir mikilvæga ræðu sem hún hélt á fundi grasrótarsamtaka repúblikana um helgina.

Myndir náðust af höndum Palin í ræðustól þar sem sást að hún hafði krotað orðin „orkumál", „skattar," og „bandarískur baráttuandi" í lófa sína áður en opnað var fyrir spurningar eftir ræðu hennar á laugardag.  Þá virtist hún hafa skrifað „niðurskurður í fjárlögum" í lófann en síðan krotað yfir orðið „fjárlög".

Í upptökum af fundinum sést til Palin þar sem hún gjóir augunum á glósurnar  þegar hún var spurð að því hvaða þrjú mál væru í forgangi ef íhaldsmenn hefðu meirihluta á þingi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar


finnur.is