Réttað yfir lækni Michaels Jacksons
Conrad Murray, fyrrum læknir Michaels Jacksons, var í dag formlega ákærður fyrir manndráp af gáleysi af saksóknara í Los Angeles. Murray kom í réttarsalinn í lögreglufylgd og lýsti sig saklausan. Verði hann fundinn sekur bíður hans allt að fjögurra ára fangelsisvist.
Blaðamenn og ljósmyndarar söfnuðust saman í kvöld að íslenskum tíma við réttarsalinn til að fylgjast með. Meðlimir úr Jackson fjölskyldunni, þ.á.m. foreldrar Jacksons, eru einnig viðstaddir. Sjálfur mætti Murray í réttarsalinn fyrir stundu í fylgd lögregluþjóna en án handjárna og sagði ekki orð við fjölmiðla.
Jackson lést þann 25. júní síðastliðinn fimmtugur að aldri. Dánarorsök var skammtur af deyfilyfinu propofol í bland við önnur sterk lyf. Murray er ekki talinn hafa gefið honum of stóran af ásetningi og er því ákærður fyrir manndráp af gáleysi.






