Sjallinn opnaður á ný

Sjallinn á Akureyri. stækka

Sjallinn á Akureyri. mbl.is/Skapti

Starfsemi Sjallans á Akureyri hefur verið leyfð á ný en staðnum var lokað vegna ófullnægjandi brunavarna og brota á byggingarreglugerð.  

Fram kemur í tilkynningu frá slökkviðsstjóra Akureyrar og byggingarfulltrúans á Akureyri, að lokið sé úttekt á húsnæði Sjallands, endurskoðaðir aðaluppdrættir hafi verið samþykktir og úrbætur gerðar í samræmi við þá.

Eftir eftirlitsskoðun og yfirferð á öryggisþáttum húsnæðisins í dag sé talið, að kröfur hafi verið uppfylltar varðandi þær athugasemdir sem gerðar voru og sé starfsemi því heimiluð á ný og lokun aflétt. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is