6.000 strandaglópar í Pýreneafjöllum

Við Barcelona eru fjöllin nú snævi þakin. stækka

Við Barcelona eru fjöllin nú snævi þakin. ALBERT GEA

Yfir 6.000 vegfarendur sitja fastir á landamærum Frakklands og Spánar þar sem rúmur metri af jafnföllnum snjó stíflar vegi eftir skyndilega snjókomu í Pýreneafjöllum.

Tæplega hálfrar aldrar gamalt úrkomumet var slegið í Barcelona á Spáni í dag, því þar hefur ekki snjóað jafnmikið síðan árið 1962 og hefur veðrið valdið miklum truflunum í borginni og nærliggjandi héruðum.  Umferð um landamærin til Frakklands hefur tafist mjög og m.a. sitja um 1.750 vöruflutningabílar fastir Frakklandsmegin við fjallgarðinn, á svæði sem varð einnig illa úti í umhleypingum síðustu viku þegar ofsaveður gekk yfir með miklum rigningum.

Í Norðausturhluta Spánar hafa flugsamgöngur legið niðri síðan í gær og 165.960 börn sitja heima þar sem skólum hefur verið lokað. Í Girona hérað eru um 200.000 heimili án rafmagns. Í Suðvestur-Frakklandi færðu slökkviliðsmenn 1.800 strönduðum lestarfarþegum heitan mat og drykk og einnig 550 eftirlaunaþegum og skólabörnum sem sitja föst í rútum á leið til Spánar.

Þúsundir ferðalanga leituðu skjóls í nótt í tímabundnum neyðarskýlum sem opnuð voru í opinberum byggingum við A9 hraðbrautina, en hún var opnuð aftur í morgun.  Vetrarhörkurnar teygðu sig alla leið til Ítalíu þar sem brast á með snjókomu íbúum Pisa og Siena til mikillar undrunar. Þar búa yfirvöld sig undir að veðrið versni enn á morgun.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí


finnur.is