Enn í öndunarvél eftir eldsvoða

Slökkviliðið í Sóleyjarrima á sunnudag. stækka

Slökkviliðið í Sóleyjarrima á sunnudag. mynd/Sjafnar Gunnarsson

Maður sem reykkafarar sóttu inn í íbúð eftir að eldur kom upp í fjölbýlishúsi við Sóleyjarrima á laugardag liggur enn þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítalans. Honum hefur verið haldið sofandi í öndunarvél síðan slysið varð og er líðan hans að mestu óbreytt að sögn vakthafandi læknis. 

Eldurinn kom upp um miðjan dag á laugardag og var töluvert mikill reykur í íbúðinni þar sem maðurinn fannst þegar slökkvilið kom á staðinn. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí


finnur.is