Hundrað fíklar með í rannsókn

Sæktu Flash-spilarann til að spila myndskeiðið
mbl.is Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is
Vonast er til að hundrað íslenskir amfetamínfíklar taki þátt í viðamikilli lyfjarannsókn sem SÁÁ stendur fyrir í samvinnu við bandaríska heilbrigðisráðuneytið.

Lyfið sem um ræðir kallast NALTREXONE og hefur verið notað í töfluformi í nokkur ár við áfengissýki með ágætum árangri. Vonast er til að lyfið reynist amfetamínfíklum einnig gagnlegt samhliða hefðbundinni meðferð þannig að draga megi úr falli hjá þeim.

Stefnt er að því að hundrað íslenskir amfetamínfíklar taki þátt í rannsókninni á tveggja ára tímabili en hún er gerð í samvinnu við Pennsylvaníuháskólann í Bandaríkjunum og undirstofnun bandaríska heilbrigðisráðuneytisins, sem kostar rannsóknina að mestu.

Almennt hefur áhugi aukist í heiminum á rannsóknum á amfetamínfíkn enda eru amfetamínfíklar þungur hópur í meðferð og kostnaðarsamur. Og það gildir ekki síður hér á landi en úti í hinum stóra heimi.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is