Leikföng FIFA framleidd í þrælabúðum
Zakumi, lukkudýr heimsmeistaramótsins 2010 í knattspyrnu er framleitt sem leikfang við vafasamar aðstæður í kínverskri verksmiðju. SIPHIWE SIBEKO
Framleiðslu leikfanga og annarra merkjavara fyrir heimsmeistarakeppnina í knattspyrnu 2010 hefur verið hætt tímabundið eftir að grunsemdir vöknuðu um óásættanlegar aðstæður verkamanna í kínversku verksmiðjunni sem ráðin var til verksins.
Að sögn FIFA, Alþjóða knattspyrnusambandsins, var samningurinn við verksmiðjuna dreginn til baka eftir að eftirlitsaðilar vöktu máls á því að leikföngin væru framleidd í n.k. þrælabúðum. Talið er að þar séu unglingar að störfum sem taki 13 klukkustunda vaktir fyrir aðeins 3 dollara í dagslaun.
Talsmenn Cosatu, stærsta verkalýðsfélag í Suður-Afríku, hafa brugðist afar illa við tíðindunum og kröfðust þess í dag að framleiða ætti merkjavöruna fyrir heimsmeistarakeppnina innan Suður-Afríku. Verksmiðjan í Kína, sem kallast Shangai Fashion Plastic Products, var ráðin til starfans sem undirvertaki suður-afrísks fyrirtækis sem er i eigu þingmanns í stjórnarflokknum African National Congress (ANC).
„Það er hneyksli að opinber fulltrúi ANC, sem hefur skuldbundið sig til að skapa mannsæmandi vinnuumhverfi, skuli taka svo skaðlega ákvörðun sem sviptir auk þess verkafólk í Suður-Afríku vinnu," segir í yfirlýsingu frá verkalýðsfélaginu. „Cosatu hvikar ekki frá þeirri skoðun sinni að verkefnið hefði aldrei átt að flytja til Kína til að byrja með."
Málið verður skoðað nánar áður en ákvörðun verður tekin um framhaldið.






