Flugferðir frestast um fjóra tíma
Vél Flugfélags Íslands flýgur yfir Öskjuhlíðina mbl.is/Ómar
Eftir Andra Karl andri@mbl.is
Verkfallið stendur í fjórar klukkustundir eða til kl. 11 og veldur röskunum á bæði innanlands- og utanlandsflugi. Fimmtán flugferðir eru þannig áætlaðar innanlands með um fjögur hundruð farþega. Þær fara aftur á áætlun um leið og verkfalli lýkur.
Að sögn Guðjóns Arngrímssonar, upplýsingafulltrúa Icelandair, má búast við að allar flugferðir til Evrópu tefjist til kl. 11 í það minnsta. Fimm vélar eiga að fara frá Keflavíkurflugvelli á meðan verkfalli stendur og á milli sjö og átta hundruð farþegar eiga bókað far. Guðjón vonast til að keðjuverkunaráhrif verði lítil en þó er ekki ólíklegt að einhverjar raskanir verði á flugferðum frá Evrópu síðdegis.
Hafa dregist aftur úr
Flugumferðarstjórar hafa ekki viljað gefa upp kröfur sínar í smáatriðum, að öðru leyti en því að krefjast sambærilegra launahækkana og flugmenn og flugfreyjur, sem nýverið náðu fram um 6% launahækkun. Ottó Eiríksson, formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra, sagði nýverið í samtali við Morgunblaðið að menn sínir hafi dregist verulega aftur úr flugmönnum í launum á síðustu árum.Í gærkvöldi bar enn nokkuð í milli samningsaðila.
Þeir farþegar sem eiga bókað flug til Evrópu í fyrramálið geta fylgst með brottfarartímum á textavarpinu og á síðu Icelandair.






