Sveinbjörn í tveggja leikja bann

Sveinbjörn Pétursson, markvörður HK, missir af tveimur næstu leikjum liðsins í N1-deildinni í handknattleik. stækka

Sveinbjörn Pétursson, markvörður HK, missir af tveimur næstu leikjum liðsins í N1-deildinni í handknattleik. Ómar Óskarsson

Sveinbjörn Pétursson, markvörður HK í handknattleik, hefur verið úrskurðaður í tveggja leikja keppnisbann af Aganefnd HSÍ „vegna grófrar óíþróttamannslegrar framkomu í leik Stjörnunnar og HK í meistaraflokki karla 07.03.2010. Niðurstaða aganefndar er að leikmaðurinn er úrskurðaður í tveggja leikja bann,“ segir í úrskurði nefndarinnar. 

Sveinbjörn missti stjórn á sér í kappleik HK og Stjörnunnar í N1-deild karla á síðasta sunnudag eftir að hafa fengið boltann í andlitið úr vítakasti Vilhjálms Halldórssonar, leikmanns Stjörnunnar. Sveinbjörn réðist á Vilhjálm í framhaldinu þannig að kom til stimpinga. Var þeim báðum vísað af leikvelli af dómurum leiksins með rautt spjald. Vilhjálmur var úrskurðaður í eins leiks keppnisbann af aganefndinni fyrir óíþróttamannslegrar framkomu.

Sveinbjörn iðraðist framkomu sinnar í leiknum og bað alla leikmenn afsökunar eftir að flautað var til leiksloka.

Magnús Stefánsson leikmaður Fram slapp við leikbann en  hlaut útilokun fyrir brot í leik Fram og FH í N1-deildinni á síðasta fimmtudag. Niðurstaða aganefndar er að leikmaðurinn fær ekki frekari refsingu þar sem um fyrstu útilokun á tímabilinu er að ræða.

Sveinbjörn leikur ekki með HK gegn Gróttu í N1-deild karla á morgun og heldur ekki þegar HK fær Fram í heimsókn á fimmtudaginn í næstu viku. Vilhjálmur verður fjarri góðu gamni þegar Stjarnan sækir Akureyri heim á föstudaginn.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is