Innlent
| mbl
| 10.3.2010
| 12:32
Þolinmóðir flugfarþegar
Sæktu
Flash-spilarann til að spila myndskeiðið
Hlynur Sigurðsson, hlynur@mbl.isFarþegar sem áttu bókað far með Flugfélagi Íslands í morgun voru þolinmóðir þegar verið var að bóka þá inn rétt fyrir 11 í morgun. Flestir þeirra höfðu fylgst með fréttum auk þess sem samband var haft við farþega og þeir látnir vita af töfinni.
Verkfall flugumferðastjóra setti flug, bæði á Keflavíkur- og Reykjavíkurflugvelli úr skorðum.
Flugumferðastjórar hafa boðað samskonar verkfall á föstudaginn og mánudag, miðvikudag og föstudag í næstu viku ef ekki semst fyrir þann tíma. Nokkuð ber enn í milli samningsaðila.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






