Þúsund manns í garðinum

Sæktu Flash-spilarann til að spila myndskeiðið
mbl.is Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is
Þegar Vilmundur Hansen fékk þá flugu í höfuðið fyrir um ári að setja upp fésbókarsíðu um garðrækt átti hann ekki von á því að ári síðar yrðu félagar hennar tæplega þúsund talsins.

Viðbrögðin hafa verið framar öllum vonum því mikil umferð hefur verið um síðuna og mikið um fyrirspurnir.

Göngutúr um Grasagarðinn í Laugardal leiðir í ljós að hvarvetna eru laukar að gægjast upp undan laufum síðasta hausts og hér og þar má sjá brum á greinum. Lífið í garðinum er því smám saman að kvikna og það stendur ekki á svari þegar Vilmundur er spurður hverju sé rétt að huga að á þessum tíma.

Fyrir utan ókeypis ráðgjöf á síðunni býður Vilmundur einnig persónulega ráðgjafarþjónustu heima í garði hvers og eins gegn gjaldi. Hann segir áhuga á garðyrkju stöðugt að aukast þótt ekki vilji hann skrifa það upp á núverandi niðursveiflu, nema kannski óbeint. 

Fésbókarsíða Vilmundar


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is