Vann dómsmál vegna ærumeiðinga

Boris Berezovsky

Boris Berezovsky Reuters

Viðskiptajöfurinn Boris Berezovsky, sem er í sjálfskipaðri útlegð í Bretlandi, vann í dag ærumeiðingarmál sem hann fór í vegna ásakana þess efnis að hann hefði staðið á bak við morðið á rússneska njósnaranum Alexander Litvinenko. Frá þessu er greint á vef breska ríkisútvarpsins.

Berezovsky voru fyrir dómi í Bretlandi dæmdar næstum 29 milljónir íslenskra króna í bætur frá rússnesku ríkissjónvarpsstöðinni RTR Planeta vegna ærumeiðinga stöðvarinnar. Enginn talsmanna sjónvarpsstöðvarinnar lét sjá sig við réttarhöldin, en þeir héldu því fram að þeim hefði ekki gefist tækifæri til þess að verja sig með sanngjörnum hætti.

Berezovsky lýsir sjálfum sér sem vini og velgjörðarmanni Litvinenkos og sagði ærumeiðingar stöðvarinnar svívirðilegar. Sagðist hann afar ánægður með dóminn.

„Við tengdumst sterkum böndum á hættulegum tímum, hann hjálpaði mér og ég honum. Síðast en ekki síst áttum við sameiginlegan óvin,“ sagði Boris Berezovsky

Litvinenkos lést í London síðla árs 2006 eftir að eitrað hafði verið fyrir honum með geislavirka efninu poloníum.

Að réttarhöldum loknum sagðist Berezovsky reyna að gæta mannorðs síns og að hann væri ánægður með niðurstöðu dómstólsins. Tók hann fram að hann væri ekki í neinum vafa um að RTR og rússnesk yfirvöld reyndu að spilla fyrir hælisumsókn hans í Bretlandi.

Ærumeiðingarnar voru settar fram í sjónvarpsþætti RTR sem sendur er um gervihnött til Bretlands í apríl 2007. Þar kom fram að Litvinenko hefði orðið vitni að tilraun Berezovskys til þess að komast hjá brottvísun frá Bretlandi og hvernig hann hafi sótt um pólitískt hæli á fölskum forsendum.

Í niðurstöðu dómsins sagðist dómarinn Justice Eady ekki hafa séð neinar sannanir fyrir því að Berezovsky tengdist morðinu á Litvinenko. „Ég sé heldur engar forsendur fyrir því að hann ætti að liggja undir grun.“

Alexander Litvinenko

Alexander Litvinenko AP

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar


finnur.is