Grikkir fara aftur í verkfall

Grikkir þurfa að bretta upp ermarnar til að vinna úr skuldavanda sínum. stækka

Grikkir þurfa að bretta upp ermarnar til að vinna úr skuldavanda sínum. YANNIS BEHRAKIS

Samgöngur í Grikklandi munu væntanlega að miklu leyti lamast í dag, er starfsmenn hefja verkfall til að mótmæla aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að bregðast við skuldavanda ríkisins. Skólum, spítölum og opinberum byggingum verða einnig tímabundið lokað vegna verkfallsins.

Er þetta í annað skipti á tveimur vikum sem efnt er til verkfalls í Grikklandi til að mótmæla niðurskurði hjá ríkinu, sem hefur tilkynnt að til að takast á við skuldavana sinn, muni það lækka laun opinberra starfsmanna, takmarka eftirlaunagreiðslur og hækka skatta á vörur.

Nú þegar eru sorphirðumenn og starfsmenn gríska ríkiskattstjórans í verkfalli, en þeir hófu verkfall sitt í byrjun vikunnar.

Flugumferðarstjórar hafa boðað að þeir muni leggja niður störf í dag, verkalýðsfélag sjómanna hefur einnig boðað verkfall, og starfsmenn almenningssamgangna ætla að leggja niður störf.

Mikil mótmæli brutust út sl. föstudag, þegar stjórnvöld reyndu að koma niðurskurðarpakka sínum í gegn. Endaði það með ofbeldisfullum átökum lögreglu og mótmælenda.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí


finnur.is