Sögðu 85 upp hjá Portsmouth

Leikmenn Portsmouth halda sínu að mestu leyti. stækka

Leikmenn Portsmouth halda sínu að mestu leyti. Reuters

Um helmingi starfsliðs enska knattspyrnufélagsins Portsmouth, 85 manns, var sagt upp í gær og einhverjir leikmanna liðsins hafa tekið á sig launalækkun.

Félagið er í greiðslustöðvun og unnið er að endurskipulagningu þess. Greiðslustöðvunarstjórinn Andrew Andronikou sagði vð BBC að engum leikmönnum hefði verið sagt upp því þeir væru helsta verðmæti félagsins í leitinni að nýjum eigendum.

Andronikou sagði að nokkrir leikmenn hefðu boðist til þess að taka á sig launalækkun og framkvæmdastjórinn, Peter Storrie, hefði lækkað í launum um 40 prósent. Að öðru leyti væri ekki hægt að eiga við laun leikmanna sem væru verndaðir af Samtökum atvinnuknattspyrnumanna.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí


finnur.is