Þjóðarbókasafn Ítalíu á netið
Ítölsk stjórnvöld hafa gert samning við Google um að fyrirtækið færi allar bækur á tveimur þjóðarbókasöfnum landsins yfir á stafrænt form og setji þær á netið, að því er breska ríkisútvarpið, BBC, greinir frá á vef sínum.
Allt að tvær milljónir klassískra verka, eftir höfunda á borð við Dante, Machiavelli og Galileo, verða skönnuð inn og gerð aðgengilega á vefsíðunni Google Books. Enginn höfundarréttur er á slíkum verkum, þar sem þau voru gefin út fyrir árið 1868.
Ítölsk stjórnvöld líta ekki síst þennan kost jákvæðum augum sökum þess að fjárhaglegt aðhald ríkisins veldur því að það getur varið minni fjárhæðum í að varðveita hin gömlu verk en áður.
Hefur BBC eftir ráðherra menningarmála á Ítalíu, Mario Resca, á að með þessu verði hægt að varveita innihald bókanna að eilífu, minnugur þess að árið 1966 eyðilagði flóð í Flórens þúsundir bóka á öðru þjóðarbóksafninu.
Google hefur átt í deilum t.d. í Bandaríkjunum og Frakklandi vegna færslu bóka á stafrænt form, og hefur m.a. fallið dómur í Frakklandi þess efnis að fyrirtækið hafi með því brotið gegn höfundarétti.







