12 ára stúlka nam barn á brott

Komið hefur í ljós að 12 ára gömul stúlka hrifsaði 3 mánaða gamlan dreng úr barnavagni í Varkaus í austurhluta Finnlands í vikunni og skildi það síðan eftir grafið í snjóskafli. Um tíma var talið að barninu hefði verið rænt í því skyni að heimta lausnargjald.

Drengurinn var í barnavagni upp við húsvegg og móðir drengsins fór reglulega út að líta með honum. Þegar hún sá að barnið var horfið úr vagninum hljóp hún örvingluð á milli húsa í nágrenninu og spurði eftir drengnum, sem fannst þremur tímum síðar á kafi í snjóskafli.

Að sögn finnskra fjölmiðla játaði 12 ára stúlka í dag að hafa tekið barnið úr vagninum. Sagðist hún hafa gert þetta í hugsunarleysi  og gerði sér ekki grein fyrir afleiðingunum.

Hufvudstadsbladet hefur eftir Jaakko Kauppila, sálfræðingi, að stúlkan kunni að hafa talið barnið vera brúðu. „Stundum fá börn hugdettur, sem við fullorðnir teljum galnar," segir hann. 

Litla drengnum varð ekki meint af volkinu þótt hann væri svangur og kaldur þegar hann fannst. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí


finnur.is