Grunur um fíkniefni ástæðan

Tækniskólinn. Lögreglan framkvæmdi húsleit þar í febrúar vegna gruns um neyslu og sölu fíkniefna innan ... stækka

Tækniskólinn. Lögreglan framkvæmdi húsleit þar í febrúar vegna gruns um neyslu og sölu fíkniefna innan skólans.

Ástæða þess að lögreglan lokaði af Tækniskólanum til að framkvæma þar húsleit fyrir um mánuði var sú að grunur lék á neyslu og sölu fíkniefna í skólanum. Þetta kom fram í kvöldfréttum RÚV sem segja nemendur hafa reykt hass á skólalóðinni og einhver gefið ellefu ára dreng í Austurbæjarskóla fíkniefni.

Fram kemur að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi svarað bréfi umboðsmanns Alþingis en óskað hafði verið eftir skýringum á leit að fíkniefnum í skólanum. Leitin sem fór fram á skólatíma var mjög umfangsmikil en öllum útgöngum skólans nema einum var lokað á meðan leit stóð yfir og var sá vaktaður af lögreglu með fíkniefnahund. Fíkniefnaleifar og áhöld til neyslu fíkniefna hafi fundist inni á salerni í skólanum.

Samkvæmt RÚV segir í bréfi lögreglustjóra að leitin hafi átt sér nokkurn aðdraganda en þrálátur orðrómur um neyslu og sölu fíkniefna hafi verið innan skólans. Fundist hafi myndavél sem sýndi nemendur meðhöndla fíkniefni. Eigandi myndavélarinnar sem var nemi við skólann hafi játað neyslu en hafnað því að eiga fíkniefni í söluumbúðum, sem sáust á myndum í myndavélinni.

Þá segir RÚV að í svarbréfi lögreglustjóra komi fram að borist upplýsingar um neyslu fíkniefna á skólalóðinni og staðfest hafi verið að í einu tilviki hafi nemendur boðið ellefu ára dreng að reykja hass.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is