Innlent
| mbl
| 12.3.2010
| 4:41
Léttskýjað á suðaustur- og austurlandi
Vestanátt, 5-15 m/s, verður á landinu í dag, hvassast við norðurströndina. Léttskýjað á suðaustur- og austurlandi, en dálítil súld vestantil. Súld eða rigning á norðanverðu landinu seint í dag. Hiti 1 til 10 stig, hlýjast suðaustanlands.
Á höfuðborgarsvæðinu verður suðvestan 3-8 m/s, skýjað og dálítil súld. Hiti 3 til 6 stig.
Á morgun, laugardag, verður vestan 3-8 m/s sunnan- og vestanlands, annars austan og norðaustan 3-8. Slydda, rigning eða snjókoma á Norður- og Austurlandi, en dálítil súld suðvestantil. Hiti 1 til 7 stig, en í kringum frostmark á norðaustanverðu landinu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






