Owen í mynd Sigurjóns

Clive Owen

Clive Owen Reuters

Breski stórleikarinn Clive Owen er samkvæmt frétt Daily Mail að fara að leika í hasarmyndinni The Killer Elite, sem fyrirtæki Sigurjóns Sighvatssonar framleiðir. Tökur á myndinni hefjast í Ástralíu í næsta mánuði en aðalleikari myndarinnar verður Jason Statham.

Clive Owen á að baki farsælan feril í kvikmyndum á á leiksviði, hefur verið tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir leik í myndinni Closer og hlotið verðlaun á borð við Golden Globe og BAFTA. Meðal annarra mynd sem Owen hefur leikið í eru Sin City, Inside Man og Children of Men, eða Mannabörn, sem Sjónvarpið sýndi nýverið.

Þá er Owen meðal leikara í myndinni Inside Man 2, ásamt Denzel Washington. Fleiri áhugaverðir leikarar koma til með að leika í mynd Sigurjóns, m.a. hinn danski Mads Mikkelsen, sem lék illmennið í James Bond myndinni Casion Royale.

Sigurjón Sighvatsson.

Sigurjón Sighvatsson.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí


finnur.is