Wenger ánægður að sjá Halsey með flautuna á ný
Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal fagnar endurkomu Mark Halsey dómara inn á völlinn, sjö mánuðum eftir að hann greindist með krabbamein. Halsey dæmdi viðureign Arsenal og Everton í 1. umferðinni í ágúst sólarhring eftir að hafa fengið að vita um veikindin.
Sex dögum eftir leik Arsenal og Everton hóf Halsey krabbameinsmeðferð og í vikunni sneri hann svo aftur inn á völlinn þegar hann dæmdi viðureign varaliða Leicester og Scunthorpe.
Það er ekki nóg með að Halsey hefur þurft að glíma við krabbameinið heldur hefur eiginkona hans átt við veikindi að stríða en hún þjáist af hvítblæði.
Á vikulegum fréttamannafundi á Emirates Stadium í dag óskaði Wenger þeim hjónum góðs bata. ,,Ég hef verið í sambandi við hann og það er frábært. Þau hjónin hafa átt erfitt og það er hræðilegt að lenda í þessu en þegar maður sér hann hlaupa á vellinum á ný þá er það meiriháttar,“ sagði Wenger.






