Áfram skjálftavirkni undir Eyjafjallajökli

Mikil skjálftavirkni hefur verið undir Eyjafjallajökli undanfarið. stækka

Mikil skjálftavirkni hefur verið undir Eyjafjallajökli undanfarið. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson

Stöðug smáskjálftavirkni var áfram undir Eyjafjallajökli í nótt og mældust  hundruð jarðskjálfta á bilinu 0-2 á richter. Stærsti skjálftinn mældist 2.2, en sú tala var þó enn óstaðfest.

Að sögn Sigurlaugar Hjaltadóttur, jarðeðlisfræðings á Veðurstofu Íslands, var skjálftavirknin í nótt þó mun minni en nóttina á undan er mun fleiri skjálftar mældust yfir 2 á richter.

Að sögn Sigurlaugar er skjálftavirknin undir jöklinum ekki farin að réna. „Það er alltaf undirliggjandi mjög mikil virkni, sem síðan eykst tímabundið,“ segir hún og kveður áfram verða vel fylgst með málum hjá jarðskjálftavakt Veðurstofunnar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is